1.  Hljóðs bið eg allar
    
helgar kindir,
    
meiri og minni
    
mögu Heimdallar. 
    
Viltu að eg, Valföður,
    
vel fyr telja
    
forn spjöll fira,
    
þau er fremst um man.
2. Eg man jötna
    
ár um borna,
    
þá er forðum mig
    
fædda höfðu.
    
Níu man eg heima,
    
níu íviði,
    
mjötvið mæran
    
fyr mold neðan.
3.   Ár var alda,
    
það er ekki var,
    
var-a sandur né sær
    
né svalar unnir;
    
jörð fannst æva
    
né upphiminn,
    
gap var ginnunga
    
en gras hvergi, 
4.   áður Burs synir
    
bjöðum um ypptu,
    
þeir er Miðgarð
    
mæran skópu;
    
sól skein sunnan
    
á salar steina,
    
þá var grund gróin 
    
grænum lauki.
5.   Sól varp sunnan,
    
sinni mána,
    
hendi inni hægri
    
um himinjöður;
    
sól það né vissi
    
hvar hún sali átti,
    
stjörnur það né vissu
    
hvar þær staði áttu,
    
máni það né vissi
    
hvað hann megins átti.
6.   Þá gengu regin öll
    
á rökstóla,
    
ginnheilög goð,
    
og um það gættust;
    
nótt og niðjum
    
nöfn um gáfu,
    
morgun hétu
    
og miðjan dag,
    
undorn og aftan,
    
árum að telja.
7.   Hittust æsir
    
á Iðavelli,
    
þeir er hörg og hof
    
hátimbruðu;
    
afla lögðu,
    
auð smíðuðu,
    
tangir skópu
    
og tól gerðu.
8.   Tefldu í túni,
    
teitir vóru,
    
var þeim vettergis
    
vant úr gulli,
    
uns þrjár kómu
    
þursa meyjar
    
ámáttkar mjög
    
úr Jötunheimum.
9.   Þá gengu regin öll
    
á rökstóla,
    
ginnheilög goð,
    
og um það gættust,
    
hver skyldi dverga
    
dróttir skepja
    
úr Brimis blóði
    
og úr Bláins leggjum.
10.  Þar var Mótsognir
    
mæstur um orðinn
    
dverga allra,
    
en Durinn annar;
    
þeir mannlíkun
    
mörg um gerðu
    
dvergar úr jörðu,
    
sem Durinn sagði.
11.  Nýi og Niði,
    
Norðri og Suðri,
    
Austri og Vestri,
    
Alþjófur, Dvalinn,
    
Bívör, Bávör,
    
Bömbur, Nóri,
    
Án og Ánar,
    
Ái, Mjöðvitnir.
12.  Veigur og Gandálfur,
    
Vindálfur, Þráinn,
    
Þekkur og Þorinn,
    
Þrár, Vitur og Litur,
    
Nár og Nýráður,
    
nú hefi eg dverga,
    
- Reginn og Ráðsviður, -
    
rétt um talda.
13.  Fíli, Kíli,
    
Fundinn, Náli,
    
Hefti, Víli,
    
Hannar, Svíur,
    
Frár, Hornbori,
    
Frægur og Lóni,
    
Aurvangur, Jari,
    
Eikinskjaldi.
14.  Mál er dverga
    
í Dvalins liði
    
ljóna kindum
    
til Lofars telja,
    
þeir er sóttu
    
frá salar steini
    
Aurvanga sjöt
    
til Jöruvalla.
15.  Þar var Draupnir
    
og Dólgþrasir,
    
Hár, Haugspori,
    
Hlévangur, Glói,
    
Skirvir, Virvir,
    
Skáfiður, Ái.
16.  Álfur og Yngvi,
    
Eikinskjaldi,
    
Fjalar og Frosti,
    
Finnur og Ginnar;
    
það mun upp
    
meðan öld lifir,
    
langniðja tal
    
Lofars hafað.
17.  Uns þrír kómu
    
úr því liði
    
öflgir og ástkir
    
æsir að húsi,
    
fundu á landi
    
lítt megandi
    
Ask og Emblu
    
örlöglausa.
18.  Önd þau né áttu,
    
óð þau né höfðu,
    
lá né læti
    
né litu góða;
    
önd gaf Óðinn,
    
óð gaf Hænir,
    
lá gaf Lóður
    
og litu góða.
19.  Ask veit eg standa,
    
heitir Yggdrasill,
    
hár baðmur, ausinn
    
hvíta auri;
    
þaðan koma döggvar
    
þær er í dala falla,
    
stendur æ yfir grænn
    
Urðarbrunni.
20.  Þaðan koma meyjar
    
margs vitandi
    
þrjár úr þeim sæ,
    
er und þolli stendur;
    
Urð hétu eina,
    
aðra Verðandi,
    
 skáru á skíði, 
    
Skuld ina þriðju.
    
Þær lög lögðu,
    
þær líf kuru
    
alda börnum,
    
örlög seggja.
21.  Það man hún fólkvíg
    
fyrst í heimi,
    
er Gullveigu
    
geirum studdu
    
og í höll Hárs
    
hana brenndu,
    
þrisvar brenndu,
    
þrisvar borna,
    
oft, ósjaldan;
    
þó hún enn lifir.
22.  Heiði hana hétu
    
hvar er til húsa kom,
    
völu velspáa,
    
vitti hún ganda;
    
seið hún hvar er hún kunni,
    
seið hún hugleikin,
    
æ var hún angan
    
illrar brúðar.
23.  Þá gengu regin öll
    
á rökstóla,
    
ginnheilög goð,
    
og um það gættust
    
hvort skyldu æsir 
    
afráð gjalda
    
eða skyldu goðin öll
    
gildi eiga.
24.  Fleygði Óðinn
    
og í fólk um skaut,
    
það var enn fólkvíg
    
fyrst í heimi;
    
brotinn var borðveggur
    
borgar ása,
    
knáttu vanir vígspá
    
völlu sporna.
25.  Þá gengu regin öll
    
á rökstóla,
    
ginnheilög goð,
    
og um það gættust
    
hverjir hefði loft allt
    
lævi blandið
    
eða ætt jötuns
    
Óðs mey gefna.
26.  Þór einn þar vó
    
þrunginn móði,
    
 hann sjaldan situr
    
er hann slíkt um fregn.
    
Á gengust eiðar,
    
orð og særi,
    
mál öll meginleg
    
er á meðal fóru.
27.  Veit hún Heimdallar
    
hljóð um fólgið
    
undir heiðvönum
    
helgum baðmi;
    
á sér hún ausast
    
aurgum fossi
    
af veði Valföðurs.
    
Vituð ér enn  eða hvað?
28.  Ein sat hún úti
    
þá er inn aldni kom
    
yggjungur ása
    
og í augu leit:
    
Hvers fregnið mig?
    
Hví freistið mín?
    
Allt veit eg, Óðinn,
    
hvar þú auga falt,
    
í inum mæra
    
Mímisbrunni.
    
Drekkur mjöð Mímir
    
morgun hverjan
    
af veði Valföðurs.
    
Vituð ér enn  eða hvað?
29.  Valdi henni Herföður
    
hringa og men,
    
fékk spjöll spakleg
    
og spá ganda,
    
sá hún vítt og um vítt
    
um veröld hverja.
30.  Sá hún valkyrjur
    
vítt um komnar,
    
görvar að ríða
    
til Goðþjóðar;
    
Skuld hélt skildi,
    
en Skögul önnur,
    
Gunnur, Hildur, Göndul
    
og Geirskögul.
    
Nú eru taldar
    
nönnur Herjans,
    
görvar að ríða
    
grund valkyrjur.
31.  Eg sá Baldri,
    
blóðgum tívur,
    
Óðins barni, 
    
örlög fólgin;
    
stóð um vaxinn
    
völlum hærri
    
mjór og mjög fagur
    
mistilteinn.
32.  Varð af þeim meiði,
    
er mær sýndist,
    
harmflaug hættleg,
    
Höður nam skjóta.
    
Baldurs bróðir var
    
um borinn snemma,
    
sá nam Óðins sonur
    
einnættur vega.
33.  Þó hann æva hendur
    
né höfuð kembdi,
    
áður á bál um bar
    
Baldurs andskota;
    
en Frigg um grét
    
í Fensölum
    
vá Valhallar.
    
Vituð ér enn  eða hvað?
34.  Þá kná Váli
    
vígbönd snúa,
    
heldur voru harðger
    
höft úr þörmum.
35.  Haft sá hún liggja
    
undir Hveralundi,
    
lægjarns líki
    
Loka áþekkjan.
    
Þar situr Sigyn
    
þeygi um sínum
    
ver vel glýjuð.
    
Vituð ér enn  eða hvað?
36.  Á fellur austan
    
um eiturdala
    
söxum og sverðum,
    
Slíður heitir sú.
37.  Stóð fyr norðan
    
á Niðavöllum
    
salur úr gulli
    
Sindra ættar;
    
en annar stóð
    
á Ókólni
    
bjórsalur jötuns,
    
en sá Brimir heitir.
38.  Sal sá hún standa
    
sólu fjarri
    
Náströndu á,
    
norður horfa dyr.
    
Féllu eiturdropar
    
inn um ljóra,
    
sá er undinn salur
    
orma hryggjum.
39.  Sá hún þar vaða
    
þunga strauma
    
menn meinsvara
    
og morðvarga
    
og þann er annars glepur
    
eyrarúnu.
    
Þar saug Niðhöggur
    
nái framgengna,
    
sleit vargur vera.
    
Vituð ér enn  eða hvað?
40.  Austur sat in aldna
    
í Járnviði
    
og fæddi þar
    
Fenris kindir.
    
Verður af þeim öllum
    
einna nokkur
    
tungls tjúgari
    
í trölls hami. 
41.  Fyllist fjörvi
    
feigra manna,
    
rýður ragna sjöt
    
rauðum dreyra.
    
Svört verða sólskin
    
um sumur eftir,
    
veður öll válynd.
    
Vituð ér enn  eða hvað?
42.  Sat þar á haugi
    
og sló hörpu
    
gýgjar hirðir,
    
glaður Eggþér;
    
gól um honum
    
í galgviði
    
fagurrauður hani,
    
sá er Fjalar heitir.
43.  Gól um ásum
    
Gullinkambi,
    
sá vekur hölda
    
að Herjaföðurs;
    
en annar gelur
    
fyr jörð neðan
    
sótrauður hani
    
að sölum Heljar.
44.  Geyr Garmur mjög
    
fyr Gnipahelli,
    
festur mun slitna
    
en freki renna.
    
Fjöld veit hún fræða,
    
fram sé eg lengra
    
um ragnarök
    
römm sigtíva.
45.  Bræður munu berjast
    
og að bönum verðast,
    
munu systrungar
    
sifjum spilla;
    
hart er í heimi,
    
hórdómur mikill,
    
skeggöld, skálmöld,
    
skildir eru klofnir,
    
vindöld, vargöld,
    
áður veröld steypist,
    
mun engi maður
    
öðrum þyrma.
46.  Leika Míms synir,
    
en mjötuður kyndist
    
að inu galla
    
Gjallarhorni.
    
Hátt blæs Heimdallur,
    
horn er á lofti,
    
mælir Óðinn
    
við Míms höfuð.
47.  Skelfur Yggdrasils
    
askur standandi,
    
ymur ið aldna tré,
    
en jötunn losnar.
    
Hræðast allir
    
á helvegum
    
áður Surtar þann 
    
sefi um gleypir.
48.  Hvað er með ásum?
    
Hvað er með álfum?
    
Gnýr allur Jötunheimur,
    
æsir eru á þingi,
    
stynja dvergar
    
fyr steindurum,
    
veggbergs vísir.
    
Vituð ér enn  eða hvað?
49.  Geyr nú Garmur mjög
    
fyr Gnipahelli,
    
festur mun slitna
    
en freki renna,
    
fjöld veit hún fræða,
    
fram sé eg lengra
    
um ragnarök
    
römm sigtíva.
50.  Hrymur ekur austan,
    
hefist lind fyrir,
    
snýst Jörmungandur
    
í jötunmóði.
    
Ormur knýr unnir,
    
en ari hlakkar,
    
slítur nái Niðfölur,
    
Naglfar losnar.
51.  Kjóll fer austan,
    
koma munu Múspells
    
um lög lýðir,
    
en Loki stýrir.
    
Fara fíflmegir
    
með freka allir,
    
þeim er bróðir
    
Býleists í för.
52.  Surtur fer sunnan
    
með sviga lævi,
    
skín af sverði
    
sól valtíva.
    
Grjótbjörg gnata,
    
en gífur rata,
    
troða halir helveg
    
en himinn klofnar.
53.  Þá kemur Hlínar
    
harmur annar fram,
    
er Óðinn fer
    
við úlf vega,
    
en bani Belja
    
bjartur að Surti;
    
þá mun Friggjar 
    
falla angan.
54.  Geyr nú Garmur mjög
    
fyr Gnipahelli,
    
festur mun slitna,
    
en freki renna.
55.  Þá kemur inn mikli
    
mögur Sigföður,
    
Víðar, vega
    
að valdýri.
    
Lætur hann megi Hveðrungs
    
mundum standa
    
hjör til hjarta,
    
þá er hefnt föður.
56.  Gín loft yfir
    
lindi jarðar.
    
Gapa ýgs kjaftar
    
orms í hæðum.
    
Mun Óðins son
    
eitri mæta
    
vargs að dauða
    
Víðars niðja.
57.  Þá kemur inn mæri
    
mögur Hlóðynjar,
    
gengur Óðins sonur
    
við orm vega,
    
drepur hann af móði
    
Miðgarðs véur,
    
 munu halir allir
    
heimstöð ryðja; 
    
gengur fet níu
    
Fjörgynjar bur
    
neppur frá naðri
    
níðs ókvíðinn.
58.  Sól tér sortna,
    
sígur fold í mar,
    
hverfa af himni
    
heiðar stjörnur.
    
Geisar eimi
    
við aldurnara,
    
leikur hár hiti
    
við himin sjálfan.
59.  Geyr nú Garmur mjög
    
fyr Gnipahelli,
    
festur mun slitna
    
en freki renna.
60.  Sér hún upp koma
    
öðru sinni
    
jörð úr ægi
    
iðjagræna.
    
Falla fossar,
    
flýgur örn yfir,
    
sá er á fjalli
    
fiska veiðir.
61.  Finnast æsir
    
á Iðavelli
    
og um moldþinur
    
máttkan dæma
    
og minnast þar
    
á megindóma
    
og á Fimbultýs
    
fornar rúnar.
62.  Þar munu eftir
    
undursamlegar
    
gullnar töflur
    
í grasi finnast,
    
þær er í árdaga
    
áttar höfðu.
63.  Munu ósánir
    
akrar vaxa,
    
böls mun alls batna,
    
Baldur mun koma.
    
Búa þeir Höður og Baldur
    
Hrofts sigtóftir
    
vel valtívar.
    
Vituð ér enn eða hvað?
64.  Þá kná Hænir
    
hlautvið kjósa
    
og burir byggja
    
bræðra tveggja
    
vindheim víðan.
    
Vituð ér enn eða hvað?
65.  Sal sér hún standa
    
sólu fegra,
    
gulli þaktan
    
á Gimlé.
    
Þar skulu dyggvar
    
dróttir byggja
    
og um aldurdaga
    
yndis njóta.
[66. Þá kemur inn ríki
    
að regindómi
    
öflugur ofan,
    
sá er öllu ræður.]
67.  Þar kemur inn dimmi
    
dreki fljúgandi,
    
naður fránn, neðan
    
frá Niðafjöllum;
    
ber sér í fjöðrum,
    
flýgur völl yfir, 
    
Niðhöggur nái.
    
Nú mun hún sökkvast.
[legal]
[privacy]
[GNU]
[policy]
[cookies]
[netiquette]
[sponsors]
[FAQ]
[man]
| Vote for polarhome |