1.      Gáttir allar 
       áður gangi fram 
       um skoðast skyli, 
       um skyggnast skyli, 
       því að óvíst er að vita 
       hvar óvinir 
       sitja á fleti fyrir.
2.      Gefendur heilir, 
       gestur er inn kominn, 
       hvar skal sitja sjá?
       Mjög er bráður 
       sá er á bröndum skal 
       síns um freista frama.
3.      Elds er þörf 
       þeim er inn er kominn 
       og á kné kalinn; 
       matar og voða 
       er manni þörf 
       þeim er hefir um fjall farið.
4.      Vatns er þörf 
       þeim er til verðar kemur, 
       þerru og þjóðlaðar, 
       góðs um æðis 
       ef sér geta mætti 
       orðs og endurþögu.
5.      Vits er þörf 
       þeim er víða ratar; 
       dælt er heima hvað.
       Að augabragði verður 
       sá er ekki kann 
       og með snotrum situr.
6.      Að hyggjandi sinni
       skyli-t maður hræsinn vera
       heldur gætinn að geði.
       Þá er horskur og þögull
       kemur heimisgarða til
       sjaldan verður víti vörum
       því að óbrigðra vin
       fær maður aldregi 
       en manvit mikið.
7.      Inn vari gestur,
       er til verðar kemur,
       þunnu hljóði þegir, 
       eyrum hlýðir 
       en augum skoðar; 
       svo nýsist fróðra hver fyrir.
8.      Hinn er sæll,
       er sér um getur
       lof og líknstafi.
       Ódælla er við það,
       er maður eiga skal
       annars brjóstum í.
9.      Sá er sæll
       er sjálfur um á
       lof og vit meðan lifir
       því að ill ráð
       hefir maður oft þegið
       annars brjóstum úr.
10.     Byrði betri
       ber-at maður brautu að
       en sé manvit mikið.
       Auði betra 
       þykir það í ókunnum stað;
       slíkt er volaðs vera.
11.     Byrði betri
       ber-at maður brautu að 
       en sé manvit mikið;
       vegnest verra
       vegur-a hann velli að 
       en sé ofdrykkja öls.
12.     Er-a svo gott
       sem gott kveða
       öl alda sonum
       því að færra veit
       er fleira drekkur
       síns til geðs gumi.
13.     Óminnishegri heitir
       sá er yfir öldrum þrumir;
       hann stelur geði guma.
       Þess fugls fjöðrum
       eg fjötraður vark
       í garði Gunnlaðar.
14.     Ölur eg varð, 
       varð ofurölvi
       að ins fróða Fjalars.
       Því er öldur best
       að aftur um heimtir
       hver sitt geð gumi.
15.     Þagalt og hugalt
       skyli þjóðans barn
       og vígdjarft vera;
       glaður og reifur
       skyli gumna hver
       uns sinn bíður bana.
16.     Ósnjallur maður
       hyggst munu ey lifa
       ef hann við víg varast
       en elli gefur
       honum engi frið
       þótt honum geirar gefi.
17.     Kópir afglapi
       er til kynnis kemur,
       þylst hann um eða þrumir.
       Allt er senn
       ef hann sylg um getur,
       uppi er þá geð guma.
18.     Sá einn veit
       er víða ratar 
       og hefir fjöld um farið
       hverju geði
       stýrir gumna hver
       sá er vitandi er vits.
19.     Haldi-t maður á keri,
       drekki þó að hófi mjöð,
       mæli þarft eða þegi;
       ókynnis þess 
       vár þig engi maður
       að þú gangir snemma að sofa.
20.     Gráðugur halur
       nema geðs viti
       etur sér aldurtrega;
       oft fær hlægis,
       er með horskum kemur,
       manni heimskum magi.
21.     Hjarðir það vitu
       nær þær heim skulu
       og ganga þá af grasi; 
       en ósvinnur maður
       kann ævagi
       síns um mál maga.
22.     Vesall maður 
       og illa skapi
       hlær að hvívetna.
       Hittki hann veit,
       er hann vita þyrfti,
       að hann er-a vamma vanur.
23.     Ósvinnur maður
       vakir um allar nætur
       og hyggur að hvívetna;
       þá er móður 
       er að morgni kemur;
       allt er víl sem var.
24.     Ósnotur maður
       hyggur sér alla vera
       viðhlæjendur vini.
       Hittki hann finnur
       þótt þeir um hann fár lesi
       ef hann með snotrum situr.
25.     Ósnotur maður
       hyggur sér alla vera
       viðhlæjendur vini;
       þá það finnur
       er að þingi kemur
       að hann á formælendur fáa.
26.     Ósnotur maður
       þykist allt vita,
       ef hann á sér í vá veru.
       Hittki hann veit
       hvað hann skal við kveða
       ef hans freista firar.
27.     Ósnotur maður
       er með aldir kemur
       það er best að hann þegi.
       Engi það veit
       að hann ekki kann 
       nema hann mæli til margt;
       veit-a maður
       hinn er vætki veit
       þótt hann mæli til margt.
28.     Fróður sá þykist
       er fregna kann
       og segja ið sama.
       Eyvitu leyna
       megu ýta synir
       því er gengur um guma.
29.     Ærna mælir
       sá er æva þegir
       staðlausu stafi;
       Hraðmælt tunga
       nema sér haldendur eigi
       oft sér ógott um gelur.
30.     Að augabragði
       skal-a maður annan hafa
       þótt til kynnis komi;
       margur þá fróður þykist
       ef hann freginn er-at
       og nái hann þurrfjallur þruma.
31.     Fróður þykist
       sá er flótta tekur
       gestur að gest hæðinn;
       veit-a görla
       sá er um verði glissir
       þótt hann með grömum glami.
32.     Gumnar margir
       erust gagnhollir
       en að virði [v]rekast,
       aldar róg 
       það mun æ vera,
       órir gestur við gest.
33.     Árliga verðar
       skyli maður oft fá
       nema til kynnis komi;
       situr og snópir,
       lætur sem sólginn sé
       og kann fregna að fáu.
34.     Afhvarf mikið
       er til ills vinar
       þótt á brautu búi,
       en til góðs vinar
       liggja gagnvegir
       þótt hann sé firr farinn.
35.     Ganga skal,
       skal-a gestur vera
       ey í einum stað;
       ljúfur verður leiður
       ef lengi situr
       annars fletjum á.
36.     Bú er betra
       þótt lítið sé,
       halur er heima hver;
       þótt tvær geitur eigi 
       og taugreftan sal,
       það er þó betra en bæn.
37.     Bú er betra
       þótt lítið sé,
       halur er heima hver;
       blóðugt er hjarta
       þeim er biðja skal
       sér í mál hvert matar.
38.     Vopnum sínum
       skal-a maður velli á 
       feti ganga framar
       því að óvíst er að vita
       nær verður á vegum úti
       geirs um þörf guma.
39.     Fannk-a eg mildan mann
       eða svo matar góðan
       að ei væri þiggja þegið
       eða síns fjár
       svogi [glöggvan] 
       að leið sé laun ef þægi.
40.     Fjár síns,
       er fengið hefir,
       skyli-t maður þörf þola;
       oft sparir leiðum
       það er hefir ljúfum hugað,
       margt gengur verr en varir.
41.     Vopnum og voðum
       skulu vinir gleðjast,
       það er á sjálfum sýnst.
       Viðurgefendur og endurgefendur
       erust lengst vinir
       ef það bíður að verða vel.
42.     Vin sínum
       skal maður vinur vera
       og gjalda gjöf við gjöf.
       Hlátur við hlátri
       skyli höldar taka
       en lausung við lygi.
43.     Vin sínum 
       skal maður vinur vera,
       þeim og þess vin;
       en óvinar síns
       skyli engi maður
       vinar vinur vera.
44.     Veistu ef þú vin átt
       þann er þú vel trúir
       og vilt þú af honum gott geta,
       geði skaltu við þann blanda
       og gjöfum skipta,
       fara að finna oft.
45.     Ef þú átt annan
       þann er þú illa trúir,
       viltu af honum þó gott geta,
       fagurt skaltu við þann mæla
       en flátt hyggja
       og gjalda lausung við lygi.
46.     Það er enn um þann
       er þú illa trúir
       og þér er grunur að hans geði,
       hlæja skaltu við þeim
       og um hug mæla;
       glík skulu gjöld gjöfum.
47.     Ungur var eg forðum,
       fór eg einn saman,
       þá varð eg villur vega;
       auðigur þóttumk
       er eg annan fann,
       maður er manns gaman.
48.     Mildir, fræknir
       menn best lifa,
       sjaldan sút ala;
       en ósnjallur maður
       uggir hotvetna,
       sýtir æ glöggur við gjöfum.
49.     Voðir mínar 
       gaf eg velli að
       tveim trémönnum;
       rekkar það þóttust
       er þeir rift höfðu;
       neis er nökkviður halur.
50.     Hrörnar þöll
       sú er stendur þorpi á,
       hlýr-at henni börkur né barr. 
       Svo er maður
       sá er manngi ann.
       Hvað skal hann lengi lifa?
51.     Eldi heitari
       brennur með illum vinum
       friður fimm daga,
       en þá slokknar
       er hinn sétti kemur
       og versnar allur vinskapur.
52.     Mikið eitt 
       skal-a manni gefa; 
       oft kaupir sér í litlu lof;
       með hálfum hleif
       og með höllu keri
       fékk eg mér félaga.
53.     Lítilla sanda,
       lítilla sæva,
       lítil eru geð guma;
       því allir menn
       urðu-t jafnspakir;
       hálf er öld hvar.
54.     Meðalsnotur
       skyli manna hver,
       æva til snotur sé.
       Þeim er fyrða
       fegurst að lifa
       er vel margt vitu.
55.     Meðalsnotur
       skyli manna hver,
       æva til snotur sé, 
       því að snoturs manns hjarta
       verður sjaldan glatt
       ef sá er alsnotur er á.
56.     Meðalsnotur
       skyli manna hver,
       æva til snotur sé.
       Örlög sín
       viti engi fyrir,
       þeim er sorgalausastur sefi.
57.     Brandur af brandi
       brenn uns brunninn er,
       funi kveikist af funa;
       maður af manni 
       verður að máli kunnur
       en til dælskur af dul.
58.     Ár skal rísa
       sá er annars vill
       fé eða fjör hafa.
       Sjaldan liggjandi úlfur
       lær um getur
       né sofandi maður sigur.
59.     Ár skal rísa
       sá er á yrkjendur fáa
       og ganga síns verka á vit.
       Margt um dvelur
       þann er um morgun sefur.
       Hálfur er auður und hvötum.
60.     Þurra skíða 
       og þakinna næfra,
       þess kann maður mjöt,
       og þess viðar
       er vinnast megi
       mál og misseri.
61.     Þveginn og mettur
       ríði maður þingi að
       þótt hann sé-t væddur til vel.
       Skúa og bróka
       skammist engi maður
       né hests in heldur
       þótt hann hafi-t góðan.
62.     Snapir og gnapir
       er til sævar kemur
       örn á aldinn mar; 
       svo er maður 
       er með mörgum kemur
       og á formælendur fáa.
63.     Fregna og segja
       skal fróðra hver
       sá er vill heitinn horskur.
       Einn vita
       né annar skal,
       þjóð veit ef þrír eru.
64.     Ríki sitt
       skyli ráðsnotra hver
       í hófi hafa.
       Þá hann það finnur
       er með fræknum kemur
       að engi er einna hvatastur.
65.     Orða þeirra
       er maður öðrum segir
       oft hann gjöld um getur.
66.     Mikilsti snemma
       kom eg í marga staði
       en til síð í suma.
       Öl var drukkið,
       sumt var ólagað;
       sjaldan hittir leiður í lið.
67.     Hér og hvar
       myndi mér heim um boðið
       ef þyrftag að málungi mat
       eða tvö lær hengi
       að ins tryggva vinar
       þar er eg hafða eitt etið.
68.     Eldur er bestur
       með ýta sonum
       og sólar sýn,
       heilindi sitt,
       ef maður hafa náir,
       og án við löst að lifa.
69.     Er-at maður alls vesall
       þótt hann sé illa heill.
       Sumur er af sonum sæll,
       sumur af frændum,
       sumur af fé ærnu,
       sumur af verkum vel.
70.     Betra er lifðum
       en sé ólifðum,
       ey getur kvikur kú.
       Eld sá eg upp brenna
       auðgum manni fyrir
       en úti var dauður fyr durum.
71.     Haltur ríður hrossi,
       hjörð rekur handar vanur,
       daufur vegur og dugir.
       Blindur er betri
       en brenndur sé,
       nýtur manngi nás.
72.     Sonur er betri
       þótt sé síð um alinn
       eftir genginn guma.
       Sjaldan bautarsteinar
       standa brautu nær
       nema reisi niður að nið.
73.     Tveir eru eins herjar,
       tunga er höfuðs bani;
       er mér í héðin hvern
       handar væni.
74.     Nótt verður feginn
       sá er nesti trúir,
       skammar eru skips rár;
       hverf er haustgríma;
       fjöld um viðrir
       á fimm dögum
       en meir á mánuði.
75.     Veit-a hinn,
       er vætki veit,
       margur verður af aurum api.
       Maður er auðigur,
       annar óauðigur,
       skyli-t þann vítka vár.
76.     Deyr fé,
       deyja frændur,
       deyr sjálfur  ið sama;
       en orðstír
       deyr aldregi
       hveim er sér góðan getur.
77.     Deyr fé,
       deyja frændur,
       deyr sjálfur ið sama.
       Eg veit einn
       að aldrei deyr:
       dómur um dauðan hvern.
[legal]
[privacy]
[GNU]
[policy]
[cookies]
[netiquette]
[sponsors]
[FAQ]
[man]
| Vote for polarhome |